Atvinna - Þjónustfulltrúi seyruverkefnis - afleysing og starfsmaður í áhaldahúsi Hrunamannahrepps

Fréttir 15.03.2022
Atvinna Þjónustufulltrúi seyruverkefnis -afleysing- Hrunamannahreppur f.h. sex sveitarfélaga í samstarfi um seyruverkefni í Uppsveitum og nágrenni leita að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi til starfa í afleysingum fyrir sveitarfélögin sem þjónustufulltrúi seyruverkefnis sveitarfélaganna. Verkefnið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna, Landgræðslunnar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og reka sveitarfélögin móttökustöð fyrir seyru á Flúðum og annast hreinsun rotþróa í sveitarfélögunum. Viðkomandi þarf að vera mjög fær í mannlegum samskiptum, tilbúinn að fást við ólík verkefni, skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa þekkingu á staðháttum, ökuréttindi og góða almenna tölvukunnáttu . Skipulag vinnutíma tekur mið af því að hreinsun á seyru fer fram á tímabilinu frá maí til október ár hvert en gert er ráð fyrir að afleysingin vari a.m.k. út árið 2022. Laun og ráðningarkjör eru skv. kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna og nánara samkomulagi.    Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf eftir samkomulagi en í síðasta lagi vorið 2022.    Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480 6600 eða hruni@fludir.is.   Umsóknum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps í síðasta lagi 25. mars n.k.   Atvinna Áhaldahús Hrunamannahrepps Hrunamannahreppur óskar eftir starfsmanni í 100% starf í áhaldahúsi Hrunamannahrepps.  Meginstarfið felst í starfi aðstoðarmanns hreinsunarbifreiðar sem sér um hreinsun á seyru í Uppsveitum og síðan almenn störf á vegum áhaldahússins.  Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu vegna skráningar upplýsinga í tölvukerfi og meðferð vinnutækja.  Laun og ráðningarkjör eru skv. kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna og nánara samkomulagi.    Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.    Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri Hrunamannahrepps í síma 480 6600 eða hruni@fludir.is.   Umsóknum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps í síðasta lagi 25. mars n.k.