Atvinna - Matráður
Fréttir
08.10.2018
Matráður óskast til starfa í tímabundna afleysingu í mötuneyti Aratungu sem m.a. þjónar nemendum og starfsmönnum leikskólans Álfaborgar og Bláskógaskóla í Reykholti.
Starfssvið
- Matráður sér um og ber ábyrgð á matseld sé í samræmi við manneldisstefnu og það skipulag sem gildir í skólunum. Hann skal hafa hollustu og hreinlæti að leiðarljósi í starfi sínu.
- Matráður stýrir starfi starfsmanna mötuneytis Aratungu og bera ábyrgð á mannvirkjum, áhöldum, tækjum og tæknibúnaði er tilheyrir mötuneyti Aratungu.
- Matráður heldur utan um þjónustu mötuneytisins og tímaskráningu starfsmanna.
- Matráður skal hafa frumkvæði að eflingu og fyrirkomulagi starfseminnar og koma tillögum þar að lútandi til forstöðumanns.Helstu verkefni
- Matreiðsla, gerð matseðils, afgreiðsla, verkstjórn, innkaup, vörumóttaka o.fl.Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og starfsreynsla á sviði matreiðslu fyrir mötuneyti.
- Reynsla af rekstri mötuneyta eða skólaeldhúsa.
- Þekking á reglugerðum um starfsemi mötuneyta og skólaeldhúsa.
- Stundvísi, reglusemi og færni í almennum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð yfirsýn.
- Þekkja reglur um öryggi á vinnustöðum.
- Kunna hjálp í viðlögum.
- Þekkja og tileinka sér rétta og eðlilega líkamsbeitingu.
- Færni í að skapa liðsheild í starfsmannahópnum.
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Daníelsson í síma 860-4440. Umsóknir berist á netfangið bjarni@blaskogabyggd.is í síðasta lagi kl. 12:00 mánudaginn 22. október n.k. ásamt ferilsskrá.