Átthagafræðinámskeið
Fréttir
17.09.2014
haldið af Fræðsluneti Suðurlands, Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi.
Námskeiðið fjallar um sögu og menningu sveitanna og verður haldið
í Reykholti, á Borg og Laugarvatni.
Umfjöllunarefni verða: Jarðfræði uppsveitanna, fornleifar, saga sveitanna á miðöldum, glæpir og refsing, starfsemi kvenfélaganna og ungmennafélaganna, áhrif Kreppunnar og sauðasölunnar á samfélagið, stofnun og saga Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Fyrirlesarar eru: Guðfinna Ragnarsdóttir jarðfræðingur, Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur, Gunnar Karlsson sagnfræðingur, Þorsteinn Tryggvi Másson héraðsskjalavörður,
Margrét Sveinbjörnsdóttir menningarmiðlari, Jón M. Ívarsson sagnfræðingur,
Bjarni Harðarson bóksali og Einar Á. Sæmundsen fræðslufulltrúi.
Námskeiðið verður á eftirtöldum stöðum:
Félagsheimilið að Borg ? 25. september
Bláskógaskóli, Reykholti ? 2. október
Félagsheimilið að Borg ? 9. október
Bláskógaskóli, Laugarvatni ? 16. október.
Skráning er hjá Fræðsluneti Suðurlands.