Aratunga 50 ára
Fréttir
11.10.2011
Laugardagskvöldið 22. október, fyrsta vetrardag, verður seinni hluti hátíðarhalda af tilefni 50 ára afmælis Aratungu haldinn. Húsið opnar kl 20:00 en skemmtunin hefst kl. 20:30.
Margt skemmtilegt verður á boðstólum m.a. brot úr Lénharði fógeta, í uppfærslu Leikdeildar UMF Bisk, en Lénharður fógeti var fyrsta leikritið sem sett var upp í Aratungu. Byggingarsaga hússins verður sögð, tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Árnessýslu, söngur og þá verður opnuð ljósmyndasýning sem sýnir byggingarsöguna.Veitingar verða á boðstólum.
Það er von okkar í afmælisnefndinni að íbúar sveitarfélagsins og aðrir velunnarar Aratungu mæti og eigi gott og skemmtilegt kvöld saman. Sérstaklega eru hvattir til að mæta þeir aðilar sem unnu í sjálfboðavinnu við bygginguna á sínum tíma.
Með von um gott og skemmtilegt kvöld
Afmælisnefnd Aratungu.