Áramótabrennur falla niður

Fréttir 15.12.2020
Fulltrúar sveitarfélaganna á Suðurlandi funduðu í dag með lögreglustjóra og fulltrúa sýslumanns og varð niðurstaða þess fundar að ekki verði áramótabrennur á gamlárskvöld. Ákvörðunin er tekin með hliðsjón af þeim samkomutakmörkunum sem í gildi eru, en skv. núgildandi reglum má ekki gefa út leyfi fyrir viðburðum sem standa eftir kl. 21 og almenna reglan um 10 manna samkomutakmarkanir gildir um viðburði af þessu tagi eins og aðra. Kveðja, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri