Ályktun um raforkumál
Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 8. janúar sl var rætt um stöðu raforkumála og kom Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, inn á fundinn og ræddi þær áskoranir sem blasa við greininni vegna hækkunar á raforkuverði. Auk þess var rætt um aðgengi að raforku fyrir heimili og fyrirtæki.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirra miklu hækkana sem urðu á raforkuverði nú um áramótin. Ein af grunnstoðum sveitarfélagsins er garðyrkja, tveir af þremur þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins byggjast upp á garðyrkju sem skapar yfir 100 störf í sveitarfélaginu. Langflest garðyrkjubýlin treysta á vaxtarlýsingu í sínum rekstri. Hætta er á að samkeppnisstaða þessara fyrirtækja muni versna til muna við þessar verðhækkanir raforku.
Aukin umræða hefur verið í samfélaginu og hjá ríkisvaldinu um fæðuöryggi og er nauðsynleg forsenda þess að grunnatvinnugreinar á sviði matvælaframleiðslu sem reiða sig á raforku hafi tryggt aðgengi að henni. Ekki er unnt að una því að þau fyrirtæki, svo og heimilin í landinu, skuli líða fyrir gallaða löggjöf sem ekki tekur á því að stórnotendur geti komist inn á smásölumarkað sem er ætlaður heimilum og minni fyrirtækjum.
Sveitarstjórn hvetur nýmyndaða ríkisstjórn að taka hratt og örugglega á því ástandi sem er að skapast á raforkumarkaði hér á landi. Sífelldar og ófyrirsjáanlegar verðhækkanir eru ekki boðlegar fyrir almenning og fyrirtæki. Ljóst er að ylræktin getur ekki tekið þátt í þessu kapphlaupi um raforkuna og verður að horfa sérstaklega til hennar til að tryggja henni áframhaldandi mikilvægan sess í þjóðfélaginu.