Alþingiskosningar, 25. september 2021. Kjörstaðir

Fréttir 06.09.2021
Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021 eru tveir: I. Húsnæði Aratungu, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum. II. Húsnæði Bláskógaskóla Laugarvatni, Lindarbraut 6, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit. Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísi þeim ef óskað er. Einstaklingar búsettir erlendis, sem hafa kosningarétt í Bláskógabyggð eru á kjörskrá í kjördeild I, í Aratungu, Reykholti. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu fram á kjördag. Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar