Alþingiskosningar, 25 apríl 2009
Fréttir
17.04.2009
Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna alþingiskosninga 25. apríl 2009 eru tveir:
I. Félagsheimilið Aratunga, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum.
II. Skrifstofa byggingarfulltrúa Laugarvatni, Dalbraut 12, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.
Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísi þeim ef óskað er. Einstaklingar búsettir erlendis, sem hafa kosningarétt í Bláskógabyggð verða að kjósa í Aratungu.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu fram á kjördag.
Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar