Allar lóðir við Brekkuholt lausar til úthlutunar.
Sveitarstjórn samþykkt á fundi sínum 20. ágúst, að auglýsa allar lóðir við Brekkuholt lausar til úthlutunar. Áður hafði helmingum lóða við götuna verið auglýstar lausar til úthlutunar. Á fundinum í dag var tveim lóðum úthlutað og áhugi er fyrir tveim öðrum lóðum. Því samþykkti sveitarstjórn að auglýsa allar lóðir við götuna lausar til úthlutunar til að bregðast við eftirspurn. Gatnagerð er ekki hafin við götuna þar sem ekki barst tilboð í gatnagerð að undangengnu útboði. Settur er ákveðinn fyrirvari með verk- og tímaþætti gatnagerðarinnar. Þær lóðir sem lausar eru til úthlutunar eru:
Gerð Stærð Brekkuholt 2, Einbýli 861,8 Brekkuholt 4, Raðhús 1189,4 Brekkuholt 5, Parhús 1006,7 Brekkuholt 7, Parhús 1080,1 Brekkuholt 8, Raðhús 1045,1 Brekkuholt 9, Parhús 1080,1 Brekkuholt 10, Raðhús 1049,4 Brekkuholt 11, Parhús 1080,1 Brekkuholt 12 , Einbýli 739,0
Hér er hægt að nálgast deiliskipulagið í Reykholti http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=21636940357136037659
Á heimasíðu Bláskógabyggðar eru upplýsingar um fleiri lausar lóðir til úthlutunar í þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins https://www.blaskogabyggd.is/stjornsysla/lodir-til-uthlutunar/
Lóðum er úthlutað af sveitarstjórn Bláskógabyggðar. Umsóknareyðublöð fyrir byggingarlóðir í Bláskógabyggð er hægt að fá á skrifstofu Bláskógabyggðar eða hér á heimasíðu sveitarfélagsins. Öllum umsóknum skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins, Aratungu, 806 Selfoss eða með tölvupósti á netfangið blaskogabyggd@blaskogabyggd.is. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins. Sími skrifstofunnar er 480-