Álagning gjalda 2008

Fréttir 09.01.2008

Álagning gjalda fyrir árið 2008. Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar þann 4. desember 2007. Álagningarprósenta útsvars verði 13,03% af útsvarsstofni. Álagningarprósenta fasteignagjalda verði; A   -  0,6% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í landbúnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum. B   - 1,2% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum, þó að undanskildum fasteignum í 0 flokki. C - 1,32% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum. Afsláttur af fasteignaskatti til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri, eða 75% öryrkjar eða meira, og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign fer eftir samþykkt um afslátt af fasteignaskatti sem samþykkt var af sveitarstjórn Bláskógabyggðar 4. des. 2007. Vatnsgjald verði 0,3% af fasteignamati eigna sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins, sbr ákv. 7. gr. laga nr. 81/1991 m.br.skv ákv. 3. gr. laga nr. 149/1995. Hámarksálagning verði kr. 18.190.- á sumarhús og íbúðarhús.  Fyrirtæki sem safna vatni í eigin miðlun fái 30% lækkun á vatnsskatti. Álagning vegna meðhöndlunar úrgangs, þ.e. sorphirðing og sorpeyðing verði kr. 9.900,- á íbúðarhús, kr. 7.300,- á sumarhús og   kr. 21.900,- á lögbýli og smárekstur. Með þessu gjaldi á lögbýli og smárekstur er innifalinn einn gámur á ári að lögbýli eða starfsstöð smáreksturs (hámark stöðutíma gáms er 3 dagar). Aukagjald fyrir að sækja rusl heim að húsum á Laugarvatni verði kr. 10.300,- innheimtist með fasteignagjöldum. Að öðru leyti verða lögbýli/fyrirtæki að sjá sjálf um geymslu, flutning úrgangs og meðhöndlun úrgangs til móttökustöðvar og greiða fyrir þá þjónustu skv. gjaldskrá flutningsaðila og móttökustöðvar (Sorpstöðvar Suðurlands). Lóðarleiga verður 0,7% af lóðarmati. Sveitarstjóri Bláskógabyggðar, Valtýr Valtýsson