Álagning fasteignagjalda 2023
Fréttir
31.01.2023
Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð
er nú lokið fyrir árið 2023
Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagninu vegna ársins 2023. Álagningarseðlar eru
ekki sendir út í bréfapósti en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir
aðgengilegir í pósthólfi á ?Mínar síður?. Innskráning á ,,Mínar síður? er með rafrænum skilríkjum
eða íslykli.
Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað en kröfur vegna fasteignagjalda
koma inn í heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar.
Allar nánari upplýsingar um álagningarreglur Bláskógabyggðar má finna inni á heimasíðu
Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is. Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í
Bláskógabyggð er sérstaklega bent á að skoða sinn rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum og
bent á að kynna sér samþykkt um tekjuviðmið, sem er um afsláttarreglur.
Þeim sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á að hafa samband við Sigríði Emilíu
Eiríksdóttur, skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 480-3000 (mánudaga ? fimmtudaga frá kl. 9 -12 og
13 ? 15 en föstudaga frá kl. 9 ? 12, eða í netfang: emma@blaskogabyggd.is.
Bláskógabyggð