Álagning fasteignagjalda 2022

Fréttir 02.02.2022
Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2022 Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagninu vegna ársins 2022. Álagningarseðlar eru ekki sendir út í bréfapósti en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir aðgengilegir í pósthólfi á ?Mínar síður?. Innskráning á ,,Mínar síður? er með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað en kröfur vegna fasteignagjalda koma inn í heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar. Allar nánari upplýsingar um álagningarreglur Bláskógabyggðar má finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is. Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í Bláskógabyggð er sérstaklega bent á að skoða sinn rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum og bent á að kynna sér samþykkt um tekjuviðmið, sem er um afsláttarreglur. Þeim sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á að hafa samband við Sigríði Emilíu Eiríksdóttur, skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 480-3000 (mánudaga ? fimmtudaga frá kl. 9 -12 og 13 ? 15 en föstudaga frá kl. 9 ? 12, eða í netfang: emma@blaskogabyggd.is. Bláskógabyggð