Álagning fasteignagjalda 2019.

Fréttir 06.02.2019
Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2019. Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagninu vegna ársins 2019. Álagningaseðlar eru ekki sendir út, en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is, en þar eru þeir aðgengilegir á ?mínar síður?, undir kassa merktur Pósthólf. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Greiðsluseðlar eru ekki sendir út, nema þess sé sérstaklega óskað, en kröfur vegna fasteignagjalda koma inn á heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar. Allar nánari upplýsingar um álagningareglur Bláskógabyggðar má finna inni á heimasíður Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is. Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í Bláskógabyggð er sérstaklega bent á að skoða sinn rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum, og bent á að kynna sér samþykkt um tekjuviðmið, sem er um afsláttarreglur. Þeir sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á að hafa samband við Guðnýju Höskuldsdóttur, skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 480-3000 (mánudaga ? fimmtudaga frá kl. 9.00 - 12.00 og 13.00 ? 15.00, en föstudaga 9.00 ? 12.00), eða í netfang: gudny@blaskogabyggd.is . Bláskógabyggð.