Álagning fasteignagjalda 2016.

Fréttir 29.01.2016
  Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2016.   Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagningu vegna ársins 2016. Álagningaseðlar 2016 verða ekki sendir út, en hægt er að nálgast þá á www.island.is undir ?Mínar síður? og þar í pósthólfi.  Innskráning á síðuna er með veflykli ríkisskattsstjóra, íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Forsendur álagningarinnar er einnig að finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar,   blaskogabyggd.is .   Greiðsluseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað, en kröfur vegna fasteignagjalda koma inná heimabanka viðkomandi gjaldenda. Þeim, sem óska eftir að fá heimsendan greiðsluseðil, er bent á að hafa samband við skrifstofu Bláskógabyggðar í síma 480-3000 ( mánudaga ? fimmtudaga frá kl. 9.00 ? 12.00 og 13.00 ? 15.00, en föstudaga frá 9.00 ? 12.00), eða á netfangið gudny@blaskogabyggd.is Allar nánari upplýsingar um álagningu gjalda 2016 eru veittar á skrifstofu Bláskógabyggðar.   Bláskógabyggð.