Álagning fasteignagjalda 2014
Fréttir
12.02.2014
Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2014.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagningu vegna ársins 2014. Álagningaseðlar 2014 verða ekki sendir út, en hægt er að nálgast þá á www.island.is undir ?Mínar síður?. Innskráning á síðuna er með veflykli ríkisskattsstjóra, íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Eins má nálgast upplýsingar um álagninguna undir bæjardyr á heimasíðu Bláskógabyggðar, blaskogabyggd.is , en þar er farið inn á mínar síður með sama hætti og á www.island.is. Forsendur álagningarinnar er einnig að finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, blaskogabyggd.is .
Greiðsluseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað, en kröfur vegna fasteignagjalda koma inná heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar, sem og undir bæjardyr á heimasíðu Bláskógabyggðar.
Þeim, sem óska eftir að fá heimsendan greiðsluseðil, er bent á að hafa samband við skrifstofu Bláskógabyggðar í síma 480-3000 ( mánudaga ? fimmtudaga frá kl. 9.00 ? 12.00 og 13.00 ? 15.00, en föstudaga frá 9.00 ? 12.00), eða á netfangið gudny@blaskogabyggd.is
Allar nánari upplýsingar um álagningu gjalda 2014 eru veittar á skrifstofu Bláskógabyggðar.
Bláskógabyggð.