Adventutónleikar í Skálholtsdómkirkju

Fréttir 21.11.2007
Aðventutónleikar í Skálholtsdómkirkju Laugardaginn 8. desember 2007, kl 15 og 18 munu Skálholtskórinn og Barna- og Kammerkór Biskupstungna  halda sína árlegu aðventutónleika í Skálholtsdómkirkju. Einsöngvarar verða Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,  sem sungið hefur á aðventutónleikum kóranna mörg undanfarin ár, og ungur tenór ættaður úr Tungunum, Egill Árni Pálsson. Undirleik annast Kammersveit konsetmeistarans Hjörleifs Valssonar og öllu stjórnar að venju Hilmar Örn Agnarsson, dómorganisti og kantor í Skálholtsdómkirkju. Síðastliðið vor lést sr Guðmundur Óli Ólafsson, sóknaprestur Tungnamanna í rúmlega fjóra áratugi.  Verða fluttir tveir fallegir jólasálmar eftir hann á tónleikunum í minningu hans. Jólalag Skálholts er í ár samið af Hildigunni Rúnarsdóttur tónskáldi, en kórinn hefur frumflutt a.m.k. eitt nýtt jólalag ár hvert undanfarin ár. Einnig verður endurflutt Jólalag Skálholts 2006 eftir Elínu Gunnlaugsdóttur. Að venju verða tvennir aðventutónleikar, þeir fyrri kl 15.00 og þeir síðari kl 18.00. Forsala aðgöngumiða er hafin í símum 897-8795 og 896-9564 og kostar miðinn kr 2.500,-. Miðar verða einnig til sölu í Skálholtsskóla, Bjarnabúð og Lyfju-útibúi í Laugarási, Bisk., versluninni Írisi á Selfossi, Versluninni Borg í Grímsnesi, Versluninni Strax á Flúðum, Versluninni Árborg í Gnúpverjahreppi og Galleríinu á Laugarvatni.   Skálholtskórinn