Aðstoðarveitustjóri
Fréttir
25.04.2022
Bláskógaveita annast rekstur og framkvæmdir við hita- og vatnsveitu Bláskógabyggðar. Veitan tilheyrir framkvæmda- og veitusviði Bláskógabyggðar og er hluti af mikilvægum innviðum í sveitarfélaginu.
Bláskógaveita óskar eftir að ráða til sín öflugan einstakling í starf aðstoðarveitustjóra. Næsti yfirmaður aðstoðarveitustjóra er veitustjóri. Um er að ræða 100% starf, en auk þess þarf aðstoðarveitustjóri að vera tilbúinn að sinna útköllum, komi upp bilanir. Vegna þess þarf starfsmaður að vera búsettur á dreifisvæði veitunnar eða í næsta nágrenni.
Starfssvið aðstoðarveitustjóra:
-
- Starfar með yfirmanni að daglegum rekstri veitukerfa.
- Starfar með yfirmanni að umsjón og viðhaldi veitukerfa.
- Vinna við nýframkvæmdir við vatnsöflun, veitukerfi og mannvirki þeim tengd.
- Verkstjórn og stýring verktaka við nýframkvæmdir, viðhald og viðgerðir.
- Vinna við fjárhagsáætlanir.
- Ábyrgð á að farið sé eftir viðeigandi reglum um öryggi á vinnustað og að frágangur verka sé með viðeigandi hætti.
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi, t.a.m. í málmiðngreinum.
- Reynsla og þekking á sviði veitna og framkvæmda.
- Færni til að stjórna og leiðbeina.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Þekking á áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð.
- Ökuréttindi.
- Suðuréttindi.
- Vinnuvélaréttindi æskileg.