Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga

Fréttir 08.11.2017
Auglýst er eftir aðstoðarskólastjóra í fullt starf við Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. janúar 2018. Stjórnunarhlutfall er um 85%, kennsluskylda 15%. Að Tónlistarskóla Árnesinga standa öll átta sveitarfélög Árnessýslu og er hann einn stærsti og umsvifamesti tónlistarskóli landsins. Starfsemi skólans fer fram á tólf stöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 500 og um 30 kennarar starfa að jafnaði við skólann. Starfs- og ábyrgðarsvið Aðstoðarskólastjóri: - vinnur undir stjórn skólastjóra og er tilbúinn að ganga í verk skólastjóra þegar á þarf að halda. - ber ábyrgð á vissum þáttum starfsins, en hefur fyrst og fremst umsjón með fjölþættu og krefjandi innra starfi skólans. - sinnir m.a. launaútreikningi ásamt skólastjóra. - er tengiliður við ýmsar opinberar stofnanir. - hefur umsjón með nemendaskrá og kennaraskrá. - kemur að gerð ársskýrslu. - sinnir öðrum tilfallandi verkefnum sem skólastjóri felur honum hverju sinni. Menntun- og hæfnikröfur Tónlistarmenntun á háskólastigi (kennari 3). Stjórnunarreynsla æskileg. Gott vald á almennri tölvu-ritvinnslu. Kunnátta á Sibelius, DaCapo og Tónalaunum er kostur. Innsæi í starfsemi tónlistarskóla og þróun tónlistarnáms æskilegt. Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund. Fagmennska, metnaður og frumkvæði. Hugmyndaauðgi og framsýni. Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti. Upplýsingar veita Róbert A. Darling skólastjóri og Helga Sighvatsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 482 1717. Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2017. Umsóknum ber að skila á skrifstofu Tónlistarskóla Árnesinga, Eyravegi 9 Selfossi, eða á netfang skólans tonar@tonar.is. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins.