Aðstoðarskólastjóri

Fréttir 30.06.2020
Bláskógaskóli, Reykholti Staða aðstoðarskólastjóra Bláskógaskóla Reykholti er laus til umsóknar. Skólinn er fyrir nemendur í 1. til 10. bekk. Í skólanum eru 83 nemendur og þar starfa 20 starfsmenn. Kjörorð skólans eru Virðing-Vellíðan-Samvinna. Bláskógaskóli í Reykholti er annar tveggja grunnskóla Bláskógabyggðar. Gott samstarf er við leikskólann Álfaborg í Reykholti, Bláskógaskóla á Laugarvatni og Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir þekkingu og skýrri sýn á skólastarf. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: ? Veita faglega forystu og móta framtíðarsýn í samstarfi við skólastjóra og í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla. ? Vera staðgengill skólastjóra. ? Veita markvissa kennslufræðilega leiðsögn og endurgjöf til starfsmanna og vera leiðandi í teymiskennslu skólans. Menntunar- og hæfnikröfur: ? Leyfisbréf grunnskólakennara og farsæl kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði. ? Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lipurð í samstarfi er skilyrði. ? Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. ? Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. ? Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á skólaþróun. ? Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti. ? Góð almenn tölvukunnátta. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Starfshlutfall er 100%. Umsókn fylgi kynningarbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf fyrir starfsheitið kennari. Starfið hentar einstaklingum óháð kyni. Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2020. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020 eða síðar eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Lára Bergljót Jónsdóttir, viðtakandi skólastjóri, í síma 847 5353. Umsókn ásamt fylgigögnum skal send á netfangið lbj@blaskogaskoli.is. Bláskógaskóli Reykholti