Aðstoðarmatráður

Fréttir 03.06.2021
Bláskógabyggð auglýsir stöðu aðstoðarmatráðs í mötuneyti Aratungu lausa til umsóknar. Bláskógabyggð leitar að jákvæðum og dugandi einstaklingi á líflegan og skemmtilegan vinnustað. Við hvetjum einstaklinga til að sækja um starfið óháð kyni. Meginverkefni: Aðstoð við matseld Umsjón með frágangi og þrif Menntunar og hæfniskröfur: Reynsla af starfi í eldhúsi æskileg Góð færni í mannlegum samskiptum Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi Starfshlutfall er um 55%. Laun og starfskjör samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. september n.k. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2021 en umsóknir og fyrirspurnir skulu berast til sveitarstjóra á netfangið asta@blaskogabyggd.is.