Upplýsingafundur um vottaða endurheimt votlendis 11.11. - tækifæri fyrir landeigendur
Fréttir
06.11.2024
Mánudagskvöldið 11. nóvember, klukkan 20:00, heldur Votlendissjóður, í samstarfi við Land og Skóg, Landbúnaðarháskólann og EFLU verkfræðistofu, upplýsingafund um vottaða endurheimt votlendis.
Fundurinn verður haldin í Þingborg, Flóahreppi.
Farið verður yfir það:
- hvað gerist líffræðilega við endurheimt votlendis,
- tækifærin í endurheimt votlendis og hvað Votlendissjóður getur gert fyrir landeigendur,
- þá vottuðu framkvæmd sem er að hefjast að Sölvaflötum, Flóahreppi,
- og hvað felst í vottaðri framkvæmd.
Kaffi og kruðerí á boðstólnum.