Ungmennafélag Biskupstungna 100 ára saga , söfnun heiðursáskrifta

Fréttir 08.02.2013
Ungmennafélag Biskupstungna 100 ára saga   Söfnun heiðursáskrifta   Ungmennafélag Biskupstungna var stofnað á sumardaginn fyrsta árið 1908 og fagnaði því 100 ára afmæli sínu árið 2008. Nú hefur Jón M. Ívarsson sagnfræðingur tekið saman sögu ungmennafélagsins á litríkan og lifandi hátt og þar kennir fjölmargra grasa. Bókin verður 250 blaðsíður í stóru og læsilegu broti og skreytt ótal myndum úr sögu félagsins. Fyrirhugað er að bókin komi út á sumardaginn fyrsta 2013 á 105 ára afmæli félagsins. Ákveðið hefur verið að hafa lista í bókinni yfir einstaklinga og fyrirtæki sem kaupa bókina í svokallaðri heiðursáskrift.  Verð á bókinni í slíkri forsölu er kr. 6.000 og til að einstaklingar og fyrirtæki fái nafn sitt í bókina þarf greiðsla að hafa farið fram fyrir 15. febrúar 2013.     Vinsamlegast greiðið heiðursáskriftina fyrir 15. febrúar inn á: Ungmennafélag Biskupstungna Kt. 660269-5179. Banki: 0151 ? 26 ? 533 Senda kvittun á: sydri.reykir@gmail.com                                Nánari upplýsingar veita: Sveinn Sæland, s. 486-8813 Gunnar Sverrisson, s. 486-8905 Margrét Sverrisdóttir, s. 486-8869 Svava Theodórsdóttir, s. 486-8873 Jens Pétur Jóhannsson, s. 486-8845 Helgi Kjartansson, s. 486-8920     Takk  fyrir að kaupa bókina, Ungmennafélag Biskupstungna.