Tónleikar My Sweet Baklava á Kaffi Kletti

Fréttir 14.12.2011
Laugardagskvöldið 17.desember kl.21. Hljómsveitin kemur nú aftur á Kaffi Klett, en ár er liðið frá síðustu tónleikum í Reykholti. Á dagskránni eru frumsamin popplög í bland við ýmis jólalög. Við hvetjum alla til að mæta og heilsa upp á okkur. Hljómsveitina skipa þau Valgerður Jónsd, Þórður Doddy Sævarsson, Sveinn Rúnar Grímarsson og Smári Þorsteinsson, Tungnamaður með meiru. My Sweet Baklava var einmitt stofnuð í Bláskógabyggð fyrir rúmu ári og hefur síðan verið iðin við spilamennsku á suður og vesturlandi. Lofum notalegri og umfram allt jólalegri stemmningu. 1000 krónur inn.