Það er allt fallegt

Fréttir 13.08.2010
Málþing, námskeið og sýningar Dagskrá um listamenn á Laugarvatni fyrr og nú. Laugardaginn 14. ágúst 2010 10 ? 12       Listamenn á Laugarvatni fyrr og nú. Málþing, Hótel Eddu, (ML). 10:00  Listmálarinn Þórarinn B. Þorláksson Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur, forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar. 10:30  Listamaðurinn og Laugarvatnsbóndinn Hlíf Böðvarsdóttir rifjar upp samskipti fjölskyldna Böðvars Magnússonar og Þórarins B. Þorlákssonar. Kvikmynd. Umsjón Stefán Magnús Böðvarsson. 10:45   Gesturinn Hugleiðing um listamenn á Laugarvatni. Jón Özur Snorrason 11:00 Að vera hér! Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og gestur Gullkistunnar. 11:10 Umræður 11:45       ?Það er allt fallegt? Opnuð sýning á eftirmyndum af málverkum Þórarins B. Þorlákssonar frá Laugarvatni sem flest eru í eigu Listasafns Íslands. Sýningin er undir berum himni og mun standa í eitt ár. 12:00 Súpa og kaffi, verð kr. 1500, óskast pantað við komu. 13 ? 17     Meðferð vatnslita ? leikur einn Eyvindartungu, kennari Harpa Björnsdóttir. Verð: 4500, efni innifalið og kaffisopi. Nemendur mega gjarnan koma með liti og efni sem þeir eiga. 12 nemendur hámark. Skráning: gullkistan@gullkistan.is - upplýsingar í símum 892-4410 og 699-0700 17             LANDscapeING, Raom&Loba Opnun myndlistarsýningar í Eyvindartungu á verkum listamanna frá Frakklandi og Argentínu. Raom og Loba eru gestir Gullkistunnar. Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurlands. Gullkistan er meðlimur í UPPLITI, menningarklasa uppsveita Árnessýslu.