Sveitarfélag ársins

Fréttir 17.10.2024
Tilkynnt hefur verið um hvaða sveitarfélög voru útnefnd sem Sveitarfélög ársins 2024. Bláskógabyggð varð þar í þriðja sæti.
Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks 10 bæjarstarfsmannafélaga hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Veitt er viðurkenning fyrir bestu heildarniðurstöðu þátta sem stuðla að blómlegu og heilbrigðu starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga.
Þetta er þriðja árið í röð sem slík könnun er gerð og hefur Bláskógabyggð fengið viðurkenningu á hverju ári. Að þessu sinni varð Skeiða- og Gnúpverjahreppur í fyrsta sæti, en áður hafði Grímsnes- og Grafningshreppur vermt efsta sætið.
Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Ekki síst er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki.
Á myndinni eru Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, og Helgi Kjartansson, oddviti, við afhendingu viðurkenningarinnar.