Stuðningsfulltrúi óskast

Fréttir 16.11.2020
Bláskógaskóli Reykholti óskar eftir stuðningsfulltrúa til starfa í 60-80% stöðu. Starfið felur í sér að aðstoða nemendur við nám og önnur fjölbreytt verkefni sem til falla í skólastarfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í janúar 2021. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Umsóknir sendist á Láru B. Jónsdóttur, skólastjóra, sem veitir einnig nánari upplýsingar. Netfangið er lbj@blaskogaskoli.is og símanúmerið 480 3020 . Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2020.