Snjómokstur - útboð

Fréttir 18.06.2024

Snjómokstur - útboð
Bláskógabyggð óskar eftir tilboði í snjómokstur og hálkuvarnir í dreifbýli í Bláskógabyggð. Um er að ræða tvö útboð, austurhluta (Biskupstungur) og vesturhluta
(Laugardalur og nágrenni) og taka bæði útboðin til þriggja ára.
Útboðsgögn fást afhent frá og með föstudeginum 21. júní n.k. á skrifstofu Bláskógabyggðar, eða með því að senda tölvupóst á netfangið
kristofer@blaskogabyggd.is
Tilboðum skal skila á skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, 806 Selfoss, fyrir kl. 09:00 þriðjudaginn 2. júlí n.k vegna vesturhluta og fyrir kl. 09:15
þann sama dag vegna austurhluta, en þá verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Nánari upplýsingar gefur Kristófer A. Tómasson, sviðsstjóri Framkvæmda- og veitusviðs Bláskógabyggðar í síma 480 3000, eða í tölvupósti á netfangið
kristofer@blaskogabyggd.is