Skólaþing í Bláskógabyggð miðvikudaginn 30. mars 2011

Fréttir 28.03.2011
Skólaþing í Bláskógabyggð Miðvikudaginn 30. mars verður haldið skólaþing fyrir leik- og grunnskóla í Bláskógabyggð. Áætlað er að skólaþingið verði tvískipt þannig að nemendur grunnskólans fái tækifæri til að koma sínum hugmyndum á framfæri milli kl. 13:00-15:00 og að síðan taki fullorðna fólkið við kl. 15:30 og ræði hlutverk og framtíðarsýn allra skólanna, bæði leikskóla og grunnskóla. Áætlað er að skólaþinginu ljúki kl. 18:00. Skólaþingið er tilvalinn vettvangur fyrir þá sem hafa áhuga á skólastarfi í sveitarfélaginu. Þar verður möguleiki á að koma með hugmyndir um hvernig hægt er að efla skólastarf í Bláskógabyggð. Í framhaldinu verður mótuð skólastefna fyrir leik- og grunnskóla í Bláskógabyggð. Allir, nemendur, kennarar, foreldrar leik- og grunnskólabarna og aðrir sem hafa áhuga á skólastarfi almennt eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á þróun skólamála. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Vinsamlegast skráið þátttöku á skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 486-8808 eða á netfangið sigurros@blaskogabyggd.is Hér fyrir neðan eru gögn sem gætu nýst á Skólaþingi Bláskógabyggðar sem haldið verður í Aratungu 30.mars 2011 og má nálgast þau með þvi að smella á slóðina hér fyrir neðan. http://blaskoli.blaskogabyggd.is/Skolathing_2011/ Hér fyrir neðan má nálgast ýmsar kannanir sem gerðar hafa verið í grunnskólum og leikskólum Bláskógabyggðar. Hér eru kannanir frá Grunnskóla Bláskógabyggðar varðandi sjálfsmat skóla og má nálgast þær með því að smella á slóðina hér fyrir neðan. http://blaskoli.blaskogabyggd.is/Skolinn/Sjalfsmat_skola/ Hér er foreldrakönnun frá Grunnskóla Bláskógabyggðar varðandi sjálfsmat skóla og má nálgast þær með því að smella á slóðina hér fyrir neðan. http://blaskoli.blaskogabyggd.is/files/388_Foreldrakonnun_Grunnskoli_Balskogabyggdar_febr_2010.pdf skráð svona á vef skólans: Foreldrakönnun 2009-2010 Nemendakönnun 2009-2010 Og starfsmatskönnun og textasvör foreldrakönnunni og starfsmannakönnunni. Hér eru skýrslur frá leikskólanum Álfaborg  og má nálgast þær með því að smella á slóðina hér fyrir neðan. http://alfaborg.blaskogabyggd.is/Um_skolann/Skyrslur/ skráð svona á vef leikskólans: Hér eru skýrslur frá leikskólanum Gullkistunni  og má nálgast þær með því að smella á slóðina hér fyrir neðan. http://gullkistan.blaskogabyggd.is/files/505_Starfsskyrsla 2009-2010.pdf og skýrsla fyrir 2009 http://gullkistan.blaskogabyggd.is/files/305_Starfsskyrsla 2009.pdf