Ritarar skipulags- og byggingarfulltrúa óskast hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.
Fréttir
01.06.2023
Ritarar skipulags- og byggingarfulltrúa óskast hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. leitar eftir ritara skipulags- og byggingarfulltrúa með áherslu á skipulagsmál annars vegar í 100% stöðugildi og hins vegar eftir ritara skipulags- og byggingarfulltrúa með áherslu á byggingarmál í 70 ? 80% stöðugildi. Undir embættið heyra skipulags- og byggingarmál sex sveitarfélaga og er það eitt stærsta embætti á sviði skipulags- og byggingamála á landinu. Embættið stendur framarlega í starfrænni þróun á þjónustu og vinnur stöðugt að aukinni skilvirkni og framþróun í starfsemi sinni. Á skrifstofunni starfar samheldinn hópur starfsmanna. Störfin eru lifandi og fjölbreytt og kallar jöfnum höndum á teymisvinnu og einstaklingsframtak.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Móttaka gagna og skjalaumsjón.
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf við umsækjendur í síma og tölvupósti.
- Samskipti og bréfaskrif.
- Skráning og meðhöndlun skjala.
- Undirbúningur funda og frágangur.
- Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann.
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Rík þjónustulund og samskiptahæfni.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá í tal- og ritmáli.
- Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
- Þekking á bygginga- og skipulagsmálum er kostur.
- Þekking á ONESystem umsjónarkerfinu er kostur.