Opnuð hafa verið tilboð í verkefnið yfirborðsfrágangur gatna í Bláskógabyggð

Fréttir 22.07.2024

Opnuð hafa verið tilboð í verkefnið yfirborðsfrágangur gatna í Bláskógabyggð.

Verkið felur semsagt í sér yfirborðsfrágang á götum í Reykholti og að Laugarvatni. Um er að ræða Traustatún að Laugarvatni, Tungurima og Borgarrima í Reykholti.

Helstu verkþættir eru þjöppun styrktarlags, lagning burðarlags, malbikun gatna og steypa á kantsteinum. Magn malbiks er rúmur hektari, eða 11.410 fermetrar

Sex tilboð bárust í verkið, lægsta tilboð barst frá Malbikstöðinni ehf í Mosfellsbæ. Það nam 71.9 milljónum króna eða 68.7 % af kostnaðaráætlun sem nam 104,7 milljónum króna.

Verklok eru sett fyrsta október næstkomandi.