Opið Gæðingamót Landstólpa.

Fréttir 24.07.2018
Gæðingamót Smára, Loga og Trausta 27-29 júlí 2018 í Torfdal á Flúðum Keppt verður í A og B flokki gæðinga, ungmenna, unglinga og barnaflokki. Keppt verður í tölti T3 í flokki 17 ára og yngri og fullorðinsflokki T3. Einnig verður keppt í 100 m flugskeiði með rafrænni tímatöku. Peningaverðlaun fyrir sigur í tölti fullorðinna !! Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com og velja þarf hmf. Smári sem mótshaldara. Skráningu lýkur kl. 23.59 þriðjudaginn 24 júlí. Hvetjum við fólk til að skrá tímanlega til að lenda ekki í vandræðum á síðustu stundu. Opnað verður fyrir skráningar 20.júlí. Ekki verður tekið við skráningum eftir auglýstan skráningarfrest. Dagskrá verður birt þegar skráningu lýkur. Skráningargjöld eru: 3000 kr fyrir börn og unglinga í alla flokka 3500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í gæðingakeppni 4500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í tölti 3000 kr í flugskeið Skráningargjöld skal millifæra inn á reikning 325-26-039005 kt 431088-1509. Staðfesting á greiðslu skal berast á netfangið smari@smari.is áður en skráningarfrestur rennur út. Mótanefnd áskilur sér rétt að fella niður flokka eða sameina sé þátttaka ekki næg.