Matarkistan

Fréttir 14.09.2010

Matarkistan Hrunamannahreppur Uppskeruhátíð á Flúðum

Föstudagur 17. september Félagsheimilið Flúðum. Tónleikar kl. 20:30-21:30. Þórunn Elín Pétursdóttir söngkona og Jón Bjarnason organisti. Íslenskar perlur, erlend sönglög og óperuaríur. Útlaginn kl. 22:00.  Unga blússveitin Stone Stones og landslið blúsara í Vinum Dóra munu slá saman í blústónleika, látið ykkur ekki vanta á þennan ótrúlega viðburð. Laugardagur 18. september Þakkargjörðarmessa í Hrunakirkju kl. 11:00.  Sr. Eríkur Jóhannsson Tré ársins í sveitinni, í lok messu tilkynnir Skógræktarfélag Hrunamannahrepps úrslit og afhendir verðlaunagrip. Matarkistan markaður í félagsheimilinu á Flúðum kl. 13:00-17:00. Matvæli frá fjölmörgum í sveitinni: grænmeti, kjöt, fiskur, konfekt, hunang, hveiti, mjólkurvörur, handverk, tré, steinar o.fl.  Kvenfélagið með kaffi og pönnukökur. Ljósmyndasýning, Sigurður Sigmundsson ljósmyndari. Bjarkarhlíð - Anna Magnúsdóttir handverkskona opið hús kl.13:00-17:00 Leikur að list -  Laugarlandi.  Dóra Mjöll og Margrét Emilsdóttir handverkskona, opið hús kl.13:00-17:00, kaffi og kynning á steinselju. Dalbær ? Rut Sigurðardóttir opið hús í glervinnustofunni kl.12:00-14:00 Gröf minjasafnið opið kl. 13:00-17:00 Kurl & Kram ? Klæðskeraverkstæði kl. 11:00-17:00. Opið hús og léttar grænmetisveitingar. Grænna land, Smiðjustíg 5 ? Opið hús kl.13:00-17:00 Kransar, skreytingaefni, plöntur til lyfjagerðar, mixtúrur, villisveppir o.fl. Félagsmiðstöðin Zero Torgstemmning og leikir fyrir ungu kynslóðina.  Grænmetisgötuleikhús Teymt undir börnunum Efra-Sel Opna íslenska grænmetismótið er haldið í tilefni uppskeruhátíðar. Margt er í boði og kylfingar hvattir til að kynna sér dagskrána á www.fludir.is. Kaffi-Sel í golfskálanum með tilboð á pizzum. Kaffi Grund Flúðum Gestakokkarnir Beggi og Pacas munu töfra fram gómsæta og framandi grænmetisrétti allan daginn og halda uppi stemmningu eins og þeim einum er lagið.

Hótel Flúðir Tekið á móti gestum í nýja, glæsilega garðinum milli kl. 14:00-16:00, boðið upp á að smakka grænmetissúpu. Hróðmar Sigurðsson spilar ljúfa tónlist. Uppskerutilboð: Gisting, þriggja rétta kvöldverður og morgunverðarhlaðborð kr. 14.250.- per mann, miðað við 2 í herbergi Flúðasveppir Undirheimum Flúðum Opið hús og kynning 16.00-17:00.  Allir velkomnir. Útlaginn. Tónleikar kl. 17:00-18:00 Kristín Magdalena Ágústsdóttir söngkona og Hörður Friðþjófsson gítarleikari. Íslensk sönglög, gamlar íslenskar, erlendar dægurperlur o.fl. Félagsheimilið. Tónleikar kl. 20:30 Ungir Hrunamenn stíga á svið og sýna hvað í þeim býr. Ferðamiðstöðin: Margrét Albertsdóttir verður með til sölu ýmislegt handverk. Sölukynnig á fatnaði og snyrtivörum frá Victoria´s Secret, fatnaði frá PINK og vörur úr Bath & bodyworks.

Sjón er söguríkari.