Malbikunarframkvæmdir

Fréttir 16.10.2024

Undirbúningur fyrir malbikun á Laugarvatni og í Reykholti hefur tekið heldur lengri tíma en búist var við. Veðráttan hefur tafið nokkuð fyrir. Í dag 16. október verður malbikað á Laugarvatni. Um er að ræða göturnar Traustatún og hluta af Hverabraut, auk gangstígs meðfram Dalbraut. Stefnt er að malbikun í Reykholti á morgun 17. október. Þar er um að ræða göturnar Tungurima og Borgarrima. Við vonumst til að óþægindi af þessum framkvæmdum verði í lágmarki.