Ingunn Jónsdóttir nýr starfsmaður í Matarsmiðjunni á Flúðum
Fréttir
29.01.2013
?Nýr starfsmaður, Ingunn Jónsdóttir hefur tekið við Matarsmiðjunni á Flúðum. Ingunn er vöruhönnuður frá LHÍ og búsett í Flóahreppi.
Matarsmiðjan á Flúðum er alhliða matvælavinnsla þar sem mögulegt er að vinna afurðir úr grænmeti,
kjöti eða fiski í kældum vinnslusal. Hún er jafnframt frábær vettvangur fyrir alla þá sem hafa áhuga á vöruþróun á sínum afurðum.
Endilega hafið samband við Ingunni í síma 858-5069 eða á ingunn.jonsdottir@matis.is ef þið hafið spurningar, skemmtilegar hugmyndir eða langar bara að kíkja í kaffi og skoða aðstöðuna.?