Hjólreiðakeppnin KIA Gullhringurinn verður haldin á Laugarvatni laugardaginn 11. júlí.

Fréttir 08.07.2015
Laugarvatn - laugardaginn 11. júlí Hjólreiðakeppnin KIA Gullhringurinn verður haldin á Laugarvatni laugardaginn 11. júlí. Allir eru velkomnir í áhorfenda- og hvatningahópinn. Kl. 16:00 Jói B Bjarna a.k.a ?Gullfoss" úr teyminu Gullfoss og Geysir byrjar að þeyta skífum á ?Meistaravöllum? og koma keppendum í keppnisgír. Kl. 18:00 KIA GULLHRINGURINN 2015 ræstur.  Verðlaunaafhending kl. 22:30. Bylgjan verður með beina útsendingu frá Laugarvatni frá hádegi og ýmislegt um að vera á svæðinu. Gallerí Laugarvatn. Í og við Galleríið verður Sumarmarkaður kl. 13:00-18:00. Fjölbreytt handverk og listmunir, nýtt og notað, ásamt gómsætum vörum beint frá býli. Efstidalur II. Íshlaðan og Hlöðuloftið verða opin 11:30-22:00 Matseðillinn að venju með hráefni beint frá býli og úr uppsveitunum.  Ísborðið að sjálfsögðu hlaðið ísnum okkar og freistandi vöffluangan í loftinu. Einnig verður lifandi tónlist á dagskrá þar sem ungir og svo aðeins eldri stíga á stokk.  Milli kl 13-14 láta upprennandi tónlistarstjörnur ljós sitt skína. Eftir kl. 14 verður svo harmonikkufjör. (13 km frá Laugarvatni) Hótel Edda IKI Laugarvatni. Opið fyrir kaffi, kökur og létta smárétti allan daginn. Veitingasalur ásamt verönd þar sem hægt er að láta liða úr sér og bragða á heitiri vöfflu eða öðru góðgæti. Veitingahúsið Lindin Málsverður Meistaranna. Pastahlaðborð, og súpa milli klukkan 14:00 - 15:00 á keppnisdag á 2.980,- . Takmarkað sæta magn. Pantanir í síma 486 1262 og lindin@laugarvatn.is Golfvöllurinn Dalbúi 9 holu völlur 5 km frá Laugarvatni. Meðan beðið er eftir að keppendur komi í mark er upplagt að taka golfhring.  Skemmtilegur völlur í fallegu umhverfi. Hægt að fá leigt golf sett og kerru eða golfbíl. Laugarvatn Adventure. Ferð í Gjábakkahelli kl 15:00. Takmarkaður sætafjöldi. (ekið frá Samkaup) Björgunarsveitin Ingunn verður með zodiac bátinn á vatninu kl.14:00-17:00 og hægt að bregða sér í siglingu. Svifvængjamenn fljúga um svæðið og e.t.v. hægt að prófa ef veður leyfir. Strandblak. Tveir frábærir strandblakvellir eru á Laugarvatni.   Laugarvatn Fontana og Sundlaugin Laugarvatni opið frá 10:00 Verslunin Strax Laugarvatni opið kl. 10:00 -22:00   Tjaldsvæðið Laugarvatni. opið og allir velkomnir Laugarvatn Hostel. Fjölbreyttir gistimöguleikar Allar upplýsingar má finna á www.sveitir.is