Framlagning kjörskrár vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024
Fréttir
06.11.2024
Kjörskrá, vegna alþingiskosninga þann 30. nóvember 2024 verður lögð fram þann 9. nóvember 2024, kjörskráin liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar öllum almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma. Almennur skrifstofutími er frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:30 til 16:00 og á föstudögum frá kl. 8:30 til 12:30.
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar með því að skrá eftirfarandi slóð
https://island.is/v/althingiskosningar-2024 og fá upplýsingar um hvar viðkomandi er á kjörskrá.