Framlagning kjörskrár fyrir Bláskógabyggð vegna alþingiskosninga 25. apríl 2009
Fréttir
15.04.2009
Skv. 26. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 með síðari breytingum
( 7/2009 og 16/2009) auglýsir sveitarstjórn Bláskógabyggðar að kjörskrárstofn vegna alþingiskosninga þann 25. apríl 2009 verður lögð fram þann 16. apríl 2009 á skrifstofu Bláskógabyggðar í Reykholti.
Kjörskráin mun liggja frammi á almennum opnunartíma skrifstofunnar til kjördags, þ.e. frá kl. 8:30 til 16:00 virka daga, nema föstudaga frá kl. 8:30 til 12:30.
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar.