Auglýsing um skipulagsmál í uppsveitum Árnessýslu og Flóahreppi
Fréttir
21.06.2012
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
Þegar vinna hefst við gerð aðalskipulagsbreytingar skal taka saman lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hafi við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynnt tillaga að lýsingu skipulags fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
- Breyting á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 innan þéttbýlisins Laugarvatn. Endurskoðun landnotkunar til samræmis við deiliskipulag.
- Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 innan þéttbýlisins Reykholt í Bláskógabyggð. Stækkun á athafnasvæði fyrir dælustöð.
- Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 á svæði úr landi Stóru-Borgar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Smábýli í stað frístundabyggðar.
- Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 á spildu úr landi Ásgarðs við Skógarholt. Svæði fyrir frístundabyggð í stað opins svæðis til sérstakra nota.
- Breyting á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015 á spildu úr landi Miðfells 3. Nýtt svæði fyrir verslun- og þjónustu.
- Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Heiðar við fossinn Faxa í Bláskógabyggð.
- Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 sem nær til golfvallarsvæðis við Borg.
- Deiliskipulag fyrir smávirkjun á jörðinni Brekku í Bláskógabyggð.
- Deiliskipulag fyrir smábýlalóðina Leiti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
- Deiliskipulag fyrir tæplega 30 ha spildu úr landi Stóru-Borgar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ný frístundabyggð norðan við þéttbýlið Borg.
- Deiliskipulag fyrir 9,7 ha spildu, Skálmholt land C (lnr.219650), í Flóahreppi.
- Tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæði í landi Heiðar við fossinn Faxa í Bláskógabyggð.
- Tillaga að deiliskipulagi fjallaselsins Hvítárnes við Hvítárvatn í Bláskógabyggð.
- Tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustulóðar á spildu úr landi Miðfells 3 í Hrunamannahreppi.
- Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Merkur í Flóahreppi. Ferðaþjónustuhús innan landbúnaðarsvæðis.