Auglýsing um skipulagsmál

Fréttir 19.01.2012
Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi   Eftirfarandi skipulagsáætlanir eru hér með auglýstar til kynningar. Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni  og á skrifstofum viðkomandi sveitarfélaga á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinnihttp://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/. Kynningartími fyrir skipulagstillögur nr. 1 til 4 er frá 19. janúar til 9. febrúar  2012 en frá 19. janúar til 2. mars 2012 fyrir tillögur nr. 5 til 8. Athugasemdir við tillögur 1 ? 4 skulu berast skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 9. febrúar 2012 og í síðasta lagi 2. mars fyrir tillögur nr. 5 til 8. Athugasemdir skulu vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests, telst vera samþykkur þeim.   Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að lýsingu skipulagsverkefnis fyrir eftirfarandi verkefni: 
  1. Frístundabyggð úr landi Eystra-Geldingaholts 5 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
 
  1. Skálasvæðið Hvítárnes við Hvítárvatn á Kili í Bláskógabyggð.
  Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi: 
  1. Tillaga að deiliskipulagi fyrir bæjartorfu Skálmholts í Flóahreppi.
 
  1. Tillaga að deiliskipulagi um 4 ha frístundabyggðarsvæði úr landi Syðra-Langholts í Hrunamannahreppi. Vesturhlíð.
  Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
  1. Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Sunnuhlíðar á Flúðum, Hrunamannahreppi.
 
  1. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Hraunborgar í Grímsnes- og Grafningshreppi, svæði 2.
 
  1. Tillaga að deiliskipulagi fyrir 24,7 ha lögbýli úr landi Hamarsholts í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
 
  1. Deiliskipulag 10 ha spildu umhverfis bæjartorfu Dalbæjar (landnr. 165468) í Flóahreppi.
  Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps