Ásta Stefánsdóttir ráðinn sveitarstjóri Bláskógabyggðar

Fréttir 11.07.2018
Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar í gær var samþykkt samhljóða að ráða Ástu Stefánsdóttur sem sveitarstjóra Bláskógabyggðar. Ásta var valin úr hópi 24 umsækjenda en Hagvangur sá um auglýsinga- og ráðningarferlið. Ásta sem er lögfræðingur að mennt hefur undanfarin átta ár gengt starfi bæjarstjóra Árborgar. Við í Bláskógabyggð óskum Ástu til hamingju með starfið og bjóðum hana velkomna til starfa.