Álagning fasteignagjalda 2013

Fréttir 15.02.2013
Álagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2013. Sú nýbreytni var tekin upp við álagningu gjalda 2012 að senda ekki út álagningar- og greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum.  Sveitarfélagið Bláskógabyggð mun því ekki senda út álagninga- og greiðsluseðla vegna álagningar árið 2013, nema þess sé sérstaklega óskað. Álagningaseðlar birtast rafrænt á vefsíðunni  island.is  undir ?Mínar síður? og eins má nálgast upplýsingar um álagninguna á heimasíðu sveitarfélagsins, blaskogabyggd.is, undir ?Bæjardyr?. Innskráning er með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.  Kröfur vegna fasteignagjalda birtast í netbanka greiðenda. Aðilar sem þess óska, geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla og er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Bláskógabyggðar í síma 486-8808 ( mánudaga-fimmtudaga frá 9.00 -12.00 og 13.00 ? 15.00, en föstudaga frá 9.00 ? 12.00 ), eða á netfangið gudny@blaskogabyggd.is. Allar nánari upplýsingar um álagningu gjaldanna eru veittar á skrifstofu Bláskógabyggðar.