Verksamningur um gatnagerð

Fréttir 16.04.2024

Gengið hefur verið frá verksamningi milli Bláskógabyggðar og Fögrusteina ehf um gatnagerð í Borgarrima í Reykholti. Alls bárust 9 tilboð í verkið og var samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda, Fögrusteina ehf. Um er að ræða þriðja áfanga í gatnagerð í Borgarrima og tekur til lóða nr. 16 og 18-22. Öllum lóðum í fyrri áföngum í Borgarrima hefur þegar verið úthlutað og rís nú hvert húsið af öðru. Verkinu skal lokið 1. október nk. Á myndinni eru Sigurður Ágústsson, eigandi Fögrusteina ehf, Helgi Kjartansson, oddviti, Kristófer A. Tómasson, sviðsstjóri og Magnús Ólason frá Eflu, sem annast verkeftirlit.