Útboð vegna fráveitu

Fréttir 12.02.2024

Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:

Laugarvatn-Fráveita 3. áfangi

Verklok eru 15.10.2024

Verkið felur í sér lagningu vatns- og fráveitu á Laugarvatni. Grafa skal fyrir vatns- og fráveitulögnum og leggja samanber útboðslýsingu.

Helstu magntölur eru:

Vatnsveitulagnir 100 m

Fráveitulagnir 660 m

Malbik 90 m2

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 13. febrúar 2024.

Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Magnús hjá eflu Suðurlandi með því að senda tölvupóst á netfangið magnus.olason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 29. febrúar og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.