Sveitarfélag ársins

Fréttir 15.10.2023
Árný Erla Bjarnadóttir, formaður FOSS, afhendir Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, viðurkenninguna.
Árný Erla Bjarnadóttir, formaður FOSS, afhendir Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, viðurkenninguna.

Í síðustu viku var kynnt hvaða sveitarfélög voru útnefnd sem Sveitarfélög ársins 2023. Bláskógabyggð varð þar í öðru sæti á eftir Grímsnes- og Grafningshreppi, sem hlaut fyrsta sætið, líkt og í fyrra, en þá var Bláskógabyggð í fjórða sæti.
Fjögur sveitarfélög voru útnefnd Sveitarfélög ársins. Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks 10 bæjarstarfsmannafélaga hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Þetta er annað árið í röð sem slík könnun er gerð og þeim sveitarfélögum veitt viðurkenning sem skara fram úr. Sveitarfélagið Vogar var í þriðja sæti og Skagaströnd í því fjórða.
Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Ekki síst er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki.
Mikill meðbyr var með könnuninni í ár og fjölgaði þátttakendum milli ára. Reiknuð var heildareinkunn út frá níu þáttum sem spurt var um í könnuninni en það voru stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd vinnustaðar, ánægja og stolt og jafnrétti.
Alls uppfyllti 21 sveitarfélag skilyrði til að komast á lista sveitarfélaga með heildareinkunn. Bláskógabyggð var með hæstu einkunn allra sveitarfélaganna fyrir stjórnun, starfsanda og ímynd og fyrir þáttinn sjálfstæði í starfi hlutu Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur jafnmörg stig og hæstu einkunn.
Á myndinni er Árný Erla Bjarnadóttir, formaður FOSS, ásamt Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra Bláskógabyggðar, við afhendingu viðurkenningarinnar.