Ný heimasíða

Fréttir 03.01.2024

Ný heimasíða Bláskógabyggðar var opnuð í dag, 3. janúar. Á síðunni eru upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins og tenglar á heimasíður samstarfsverkefna sveitarfélaganna. Auk íslensku er hægt að velja að skoða efni á síðunni á fjórum tungumálum, þ.e. ensku, pólsku, rúmensku og spænsku. Áfram verður unnið að þróun heimasíðunnar og rafræn samskipti aukin enn frekar. Slóðin á heimasíðuna er óbreytt, https://www.blaskogabyggd.is/