Lausar stöður sálfræðings og talmeinafræðings
Fréttir
17.05.2023
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. auglýsir fullt starf fullt starf sálfræðings og tímabundið 60% starf talmeinafræðings.
Á starfssvæðinu eru um 650 börn á leik- og grunnskólaaldri sem sækja nám í 10 leik-og grunnskólum. Tveir þeirra eru samreknir leik- og grunnskólar.
Stefna Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. er að þróa faglega og samþætta skóla- og velferðarþjónustu með farsæld barna og fjölskyldna að leiðarljósi. Starfssvæðið er víðfeðmt og munu stjórn og starfsmenn þróa stafræna þjónustu og lausnir eftir því sem við á. Starfsmenn geta valið starfsstöð á starfssvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni og fjarvinnustefnu en meginstarfsstöð þjónustunnar er í Laugarási. Sveitarfélögin sem standa að Skóla- og velferðarþjónustunni eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur og hafa þau flest hlotið viðurkenningu BSRB sem framúrskarandi vinnustaðir.
Talmeinafræðingur 60% stöðuhlutfall
Talmeinafræðingur er hluti af teymi sérfræðinga sem sinnir samþættri skóla- og velferðarþjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Hjá Skóla-og velferðarþjónustunni starfar nú þegar tveir talmeinafræðingar. Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á skóla- og/eða velferðarþjónustu. Starfið er tímabundið vegna fæðingarorlofs.
Starfssvið
- Skima fyrir og greina málþroskavanda barna með áherslu á áætlanagerð og eftirfylgd.
- Veita íhlutun með áherslu á snemmtæka íhlutun og árangursríkar leiðir í starfi.
- Þátttaka í teymisvinnu með starfsfólki leik- og grunnskóla og veita ráðgjöf til þeirra.
- Þátttaka í fræðslu um málþroska, málþroskaröskun og áhrif hennar á möguleika til menntunar.
- Leiðbeina og fræða foreldra um málþroska og leiðir til að efla hann.
- Stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum varðandi málþroska og læsi barna með því að beita snemmtækri íhlutun ásamt því að vera þátttakandi í skipulagðri íhlutun og kennslu.
- Háskólapróf í talmeinafræði og leyfi til að starfa sem talmeinafræðingur.
- Þekking og reynsla af skólastarfi æskileg.
- Hæfni til að sinna fræðslu og ráðgjöf til nemenda, starfsmanna og foreldra.
- Faglegur metnaður til að efla málþroska og læsi nemenda.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
- Góð almenn tæknikunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Lipurð í samstarfi og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Mat á þroska, hegðun og líðan nemenda.
- Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum og unglingum, ráðgjöf og eftirfylgni mála.
- Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla.
- Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarþjónustu.
- Samskiptum við aðrar stofnanir sem sinna börnum og fjölskyldum og samræma þjónustu.
- Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
- Þekking og reynsla af sálfræðilegum greiningum á börnum.
- Þekking og reynsla af leik- og grunnskólastarfi, þekking af velferðarþjónustu og barnavernd er kostur.
- Þekking og reynsla af ráðgjöf.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
- Lipurð í samstarfi og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga kostur.
- Góð almenn tæknikunnátta nauðsynleg.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.