Kennslu- og uppeldisráðgjafi
Fréttir
17.05.2023
Kennslu- og uppeldisráðgjafi
Staða kennslu- og uppeldisráðgjafa fyrir leik- og grunnskóla á starfssvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er laus til umsóknar. Um er að ræða 80 - 100% stöðu. Á svæðinu eru 4 leikskólar, 4 grunnskólar og tveir leik- og grunnskólar. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í þverfaglegu samstarfi og vinna að þróun þjónustunnar.
Starfssvið
- Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla til forráðamanna barna í leik- og grunnskólum
- Ráðgjöf og fræðsla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölbreyttar þarfir
- Stuðningur og ráðgjöf um fjölbreyttar og árangursríkar kennsluaðferðir
- Forvarnir og ráðgjöf um velferð barna og snemmtæka íhlutun
- Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
- Stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf skóla m.a. með ráðgjöf við starfsfólk leik- og grunnskóla
- Þverfaglegt samstarf skóla- og velferðarþjónustu
- Leyfisbréf kennara og farsæl kennslureynsla í leik- og grunnskóla æskileg
- Framhaldsnám sem nýtist í starfi æskilegt
- Þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum
- Þekking og reynsla af ráðgjöf og stuðning við nemendur varðandi hegðun og líðan
- Þekking og reynsla af forvarnarstarfi
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti