Framkvæmdir hafnar við baðlón í Laugarási

Fréttir 08.03.2024
Mynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Mynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Framkvæmdir eru hafnar við baðlón, Árböðin, á lóðinni Skálholtsvegi 1 í Laugarási. Undirbúningur að verkefninu hefur staðið yfir í um tíu ár og áætlað er að framkvæmdakostnaður nemi um tveimur milljörðum króna. Mannverk ehf stendur fyrir framkvæmdunum og stefnt er að því að verklok verði vorið 2025.